Samtök smærri útgerða hafa með góðum árangri beitt sér fyrir mikilvægum framfaraskrefum til hagsbóta fyrir aðildarfélög sín og heimabyggðir þeirra.
En betur má ef duga skal. Í dag snúast verkefnin um að standa öflugan vörð um réttindi okkar gagnvart stjórnvöldum. Ekki síður viljum við beita okkur fyrir langþráðu frelsi útgerðanna til þess að velja sér hentugustu veiðarfærin hverju sinni og hámarka þannig hagkvæmni veiðanna.
Það þarf sterka rödd til þess að á okkur sé hlustað. Krafturinn ræðst af fjölda félagsmanna og órofa samstöðu þeirra. Þess vegna þurfa smærri útgerðir stærri samtök. Vertu með.